1. Signa – Grá filma

  • Signa grá – Gegnsæi er: 0% 1% 1%

Þessi filma er mest notuð á heimilum til þess að loka fyrir glugga t.d. í forstofu og í gluggum á baðherbergi. Hún er bæði ódýr og sterk. Filman dregur úr ljósi og hita inni í herbergjum.

2. Signa – hvít filma.

Hálfgegnsæ filma til að hylja glugga

  • Signa Hvít – Gegnsæi er: 33% 33% 33%

Þessi filma dregur úr ljósi og hita inni í herbergjum en lokar því ekki alveg.

3. Signa – dökkgrá filma.

Hálfgegnsæ filma til að hylja glugga

  • Signa dökk grá – Gegnsæi er: 22% 22% 22%

Þessi filma dregur úr ljósi og hita inni í herbergjum en lokar því ekki alveg.

4. Signa – svört filma.

Hálfgegnsæ filma til að hylja glugga

  • Signa Svört – Gegnsæi er: 15% 15% 15%

Þessi filma dregur úr ljósi og hita inni í herbergjum en lokar því ekki alveg.

Algengar spurningar

Þarf ég að hreinsa gluggann eða svæðið áður en filman er fest á?

Það er mjög mikilvægt að hreinsa gluggann eða svæði sem filman á að þekkja. Best er að gera það með vatni eða hreinsiefni og nota hreinan og þurran klút eftir á.

Hvernig hreinsa ég sandblástursfilmu?

Það er auðvelt að hreinsa ryk af þessum filmum. Annað hvort með hreinum klút eða ryksugu. Bara að passa upp á klúturinn og ryksuguhausinn séu hreinir. Ef rykið næst ekki af þá er hægt að prófa límrúllu sem notuð er á fatnað. Alls ekki reyna að taka hana af eða nota hreinsiefni eða gufu.

Má ég nota vatn á sandblástursfilmu?

Það má nota vatn eða microfiber klút á litla bletti. Alls ekki nota gufu, blauta tusku o.s.frv.

Hvernig hreinsa ég glugga sem er aðeins þakinn að hluta til með sandblástursfilmu?

Þá er best að nota microfiber klút og rúðuúða t.d. Ajax á þann hluta sem er ekki með filmu.

Má ég nota hreinsiefni á sandblásturfilmu?

Oftast nær er hægt að hreinsa sandblástursfilmu með vatni og klút. Ef þú ætlar að nota hreinsefni þá mælum við með að þú prófir að nota það á lítið svæði og sjá hvernig það kemur út. Við mælum ekki með því.

Get ég fjarlægt sandblástursfilmu af til þess að þrífa gluggann?

Nei, það má alls ekki. Filman er ónýt um leið og hún er tekin af.

Get ég fjarlægt sandblástursfilmu af til þess að þrífa gluggann?

Nei, það má alls ekki. Filman er ónýt um leið og hún er tekin af.

Eru þessar filmur umhverfisvænar?

Þær eru umhverfisvænar enda innihalda ekkert PVC efni.

Get ég aðeins sett svona filmu á glugga?

Það er hægt að setja þessar filmur á alla slétta fleti hvort sem þeir eru gerðir úr gleri, ryðfríu stái eða vissum tegundum af við og plasti.

Hvað geri ég ef svæðið er of stórt fyrir eina filmu?

Ef svæðið er það stórt að þú þarft að nota meira en eina filmu þá er mikilvægt að samskeytin séu ekki áberandi. Þá er best að setja báðar filmunar á flötin þannig að þær fari aðeins yfir hvor aðra. Síðan skerðu filmuna með dúkahnífi. Passaðu þig að rispa ekki rúðuna eða svæðið undir filmunni. Oft er betra að setja aðra filmur undir sem má skera í.

Mega þessar filmur vera í röku lofti?

Nei þá losna þær af og eyðileggjast.

Hvernig tek ég filmuna af?

Það er ekkert mál að taka filmuna af glugganum eða svæðinu. Best er að byrja efst í horninu með því að skafa hana af og halda svo áfram niður. Það er ekki hægt að endurvinna hana þar sem límið festist á hana. Síðan er auðvelt að hreinsa gluggann eða svæðið með t.d. uppþvottalögi og vatni.

Hvernig set ég filmuna á glugga?

Vinsælasta aðferðin við að setja filmu í glugga er að:
1) Þrífa rúðuna (flötinn) vel með rúðuhreinsi.
2) Úða sápuvatni á rúðuna (vatn+nokkrir dropar af uppþvottalögi)
3) Taka pappírinn varlega frá filmunni. Passa að ekki komi brot í hana. 
4) Úða sápuvatni á límhlið.
5) Leggja filmuna í gluggann (flötinn). Stilla af í glugga.
6) Úða sápuvatni á filmuna.
7) Skafa sápuvatnið frá miðju filmu og út. Byrja efst.
8) Þurrka varlega vatn af filmu og úr glugga.
9) Ef það er pappír yfir mynstri eða texta þá er best að taka hann ekki af filmunni fyrir en sólarhring seinna.

 

Við tryggjum að vörumerki viðskiptavina okkar séu notuð í samræmi við þá stefnu sem þeir setja okkur

SANDBLÁSTURSFILMUR

 Sandblástursfilmur með útskornu og/eða prentuðu mynstri eða merki fyrirtækis er ein vinsælasta lausnin á merkingum á glerveggjum og gluggum fyrirtækja og heimila. Þetta er bráðgóð lausn þar sem þú getur fullvissað þig um að ekkert sést inn en þú færð birtu inn í rýmið. Vinsælt er að skera í filmuna texta, svo sem ljóð, spakmæli, götuheiti o.fl. Fyrir þá sem vilja fá filmur í glugga er best að senda okkur gluggamál ásamt númeri á mynstri og letri sem hægt er að sjá hér að neðan eða í netversluninni. Það er ekki mikið mál að setja filmurnar í gluggana en að sjálfsögðu getum við orðið að liði sé þess óskað

Heimilisfang

Bæjarflöt 19

112 Reykjavík

Iceland

Tölvupóstur

signa(@)signa.is

Sími

}

Opnunartími

Mánudag. – Fimmtud.

kl. 08:00 – 17:00

Föstudaga

kl. 08:00 – 16:15

p

Upplýsingar

VSK nr: 106196 

Kt: 490910-0930