LJÓSASKILTI

Skilti með ljósum er algengasta tegund útiskilta sem eru hvert með sínu móti.

 

Vinsælasta ljósaskiltið er ljósakassi. Ljósaskassi eru skilti smíðuð úr áli. Plötu, sem yfirleitt er úr plexígleri, er rennt inn í rauf fremst á skiltinu og inn í ljósakassanum er komið fyrir ljósakerfi úr díóðum (LED). Hægt er að útfæra skiltið á ýmsa vegu. Algengt er að prenta ljósmyndir eða grafík á glæra filmu þannig að lýsingin innan úr skiltinu skíni í gegnum prentunina. Þessi aðferð gefur oft mjög góða raun. Ljósakassar er ódýrasta lausnin og jafnframt sú auðveldasta að auglýsa fyrirtæki því að það hvort tveggja auðvelt og ódýrt að skipta um filmu í ljósakassanum.

Önnur tegund ljósaskilta eru díóðuskilti eða LED-skilti. Þessi skilti eru með útfræsta bókstafi og/eða tölustafi og annað hvort með fram- eða baklýsingu. Þetta er mjög góð og hagkvæm lausn, díóður eru endingargóðar og rafmagnseyðsla er sáralítil.

 

MISMUNANDI ÚTFÆRSLUR Á LJÓSASKILTUM

Ljósakassi

Ljósaskassi eru skilti smíðuð úr áli. Plötu, sem yfirleitt er úr plexígleri, er rennt inn í rauf fremst á skiltinu og inn í ljósakassanum er komið fyrir ljósakerfi úr díóðum (LED). Hægt er að útfæra skiltið á ýmsa vegu. Algengt er að prenta ljósmyndir eða grafík á glæra filmu þannig að lýsingin innan úr skiltinu skíni í gegnum prentunina. Þessi aðferð gefur oft mjög góða raun. Ljósakassar er ódýrasta lausnin og jafnframt sú auðveldasta að auglýsa fyrirtæki því að það hvort tveggja auðvelt og ódýrt að skipta um filmu í ljósakassanum.

Framlýst skilti

Framlýst skilti eru algeng og þar að auki vinsælust allra díóðuskilta. Lýsingin er eingöngu í bókstöfum og/eða tölustöfum sem eru útfræstir. Stafirnir eru fræstir út í þrívídd og eru annað hvort úr áli eða PVC -efni. Díóður (LED) er í lýsingunni. Þetta er sömuleiðis flott lausn enda eru díóður endingagóðar og rafmagnseyðsla sáralítil.

Baklýst skilti

Baklýst skilti eru líka með útfræsta bókstafi og/eða tölustafi eins og framlýstu skiltin en lýsingin er á bak við stafina eins og heitið gefur til kynna. Stafirnir eru fræstir út í þrívídd og eru annað hvort úr áli eða PVC -efni. Afar öflugar díóður (LED) er í lýsingunni. Þetta er að sama skapi afar flott og hagkvæm lausn enda eru díóður endingagóðar og rafmagnseyðsla sáralítil.

 

Komdu til okkar með hugmynd eða fullhannað ljósaskilti í kollinum! Ef þú ert aðeins með hálfmótaða hugmynd hvernig þú vilt hafa skiltið, þá hjálpum við þér. Þegar hönnun á ljósaskiltinu er lokið færðu útprentaða mynd sem sýnir hvernig skiltið mun líta út þar sem það á að vera. Sértu sammála útfærslunni fer framleiðsluferlið í gang sem við sjáum alfarið um. Þú þarft ekkert að velta meira vöngum yfir skiltinu, aðeins kveikja á því þegar skiltið er komið upp! Getur ekki verið auðveldara!

Signa_logo

Bæjarflöt 19

112 Reykjavík

544 45 45

signa(hjá)signa.is

Opnunartími:

Mánudag. - Fimmtud.  kl. 08:00 - 17:00

Föstudaga  kl. 08:00 - 16:15

Upplýsingar

 

VSK nr: 106196 

Kt: 490910-0930

Samfélagsmiðlar

 

Um Signu

Skil á gögnum

Persónuverndarstefna