Öryggismyndavéla stefna Signu

Signa ehf. hefur sett sér eftirfarandi reglur um rafræna vöktun öryggismyndavéla. Reglurnar byggja á
lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og reglum nr. 837/2006 um
rafræna vöktun og meðferð persónuupplýsinga sem til verða við rafræna vöktun.

1. gr. Umfang vöktunar

Signa nýtir stafrænar myndavélar þar sem rafræn vöktun er talin nauðsynleg á grundvelli öryggis eða
eignavörslu, sbr. 2. gr. reglnanna. Skýrlega er merkt við alla innganga að rafræn vöktun fari fram.

2. gr. Tilgangur

Tilgangur með rafrænni vöktun er að tryggja öryggi einstaklinga og varna því að eigur séu skemmdar
eða þeim stolið. Reglunum er ætlað að tryggja meðalhóf, virða einkalífsrétt þeirra sem sæta vöktun
og ganga ekki lengra en nauðsyn ber til.

3. gr. Meginreglur sem gilda um rafræna vöktun

Persónuupplýsingar sem verða til við rafræna vöktun skal fara með í samræmi við 8. gr. laga um
persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 90/2018. Skulu upplýsingar unnar með
sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og öll meðferð þeirra samrýmast vönduðum
vinnsluháttum persónuupplýsinga. Upplýsingunum er safnað í yfirlýstum, skýrum og málefnalegum
tilgangi, sbr. 2. gr. reglnanna og eru ekki unnar frekar í öðrum og ósamrýmanlegum tilgangi.
Upplýsingar sem safnað er skulu vera nægilegar, viðeigandi og ekki umfram það sem nauðsynlegt er
miðað við tilgang vinnslunnar.

4. gr. Varðveisla persónuupplýsinga sem verða til við rafræna vöktun

Myndefni sem verður til við rafræna vöktun eyðist sjálfkrafa eftir að hámarki 30 daga nema nauðsyn
krefji til að varðveita það til að geta stofnað, haft uppi og eftir atvikum varið réttarkröfur, einkum í
dómsmáli, að því gefnu að þau lagaákvæði sem tilgreind eru í 2. gr. hér að framan eigi við, önnur lög
heimili eða dómsúrskurður eða fyrirmæli þar til bærs stjórnvalds liggi fyrir.

5. gr. Skoðun persónuupplýsinga sem verða til við rafræna vöktun

Myndefni úr stafrænum myndavélum verður eingöngu skoðað ef upp koma atvik er varða eignavörslu
eða öryggi einstaklinga, s.s. þjófnaður, skemmdarverk eða slys. Framkvæmdastjóri Signa auk
staðgengils hans hafa aðgang að rafrænum upptökum.
Þeir starfsmenn sem aðgang hafa að myndefni skulu gæta fyllsta trúnaðar um hvaðeina sem þar
kemur fram og eðlilegt er að leynt fari. Bera þeir sérstaka þagnarskyldu um þær persónuupplýsingar
sem koma fyrir í myndefninu.
Berist krafa frá aðila um skoðun gagna sem hafa orðið til við rafræna vöktun, skulu gögn skoðuð og
gengið úr skugga um að upptaka sé af aðila. Ef svo er þá er honum heimilað að skoða efnið eigi síðar
en innan eins mánaðar frá móttöku erindis. Komi upp ágreiningur, m.a. vegna hagsmuna þriðja aðila,
má vísa honum til úrlausnar Persónuverndar. Getur Persónuvernd þá lagt fyrir Signa að varðveita
gögn þar til niðurstaða hennar liggur fyrir. Ef skoðun á myndefni leiðir í ljós að grunur sé um
eignaspjöll, slys, slagsmál eða mögulega refsiverða háttsemi þar sem ólögráða einstaklingar koma við
sögu skal forsjáraðilum gert viðvart og þeim gerð grein fyrir möguleika á því að fá að vera viðstaddir
skoðun á efni.

6. gr. Afhending persónuupplýsinga sem verða til við rafræna vöktun

Upptökur verða almennt ekki afhentar öðrum en lögreglu og þá ef um slys eða meintan refsiverðan
verknað er að ræða. Óheimilt er að afhenda þriðja aðila upplýsingar sem safnast hafa með
öryggismyndavélum nema með skýru samþykki þess sem upptaka er af eða samkvæmt ákvörðun
Persónuverndar. Þá er einnig heimilt að miðla vistuðu myndefni í þeim tilgangi að Signa geti stofnað,
haft uppi og eftir atvikum varið réttarkröfur. Í þeim tilvikum sem unnið er með myndefni sem verður
til við rafræna vöktun í þeim tilgangi er, eins og nauðsyn krefur, heimilt að veita stjórnendum,
lögmönnum og tryggingarfélagi Signa og gagnaðila, auk dómstóla, aðgang að myndefninu.
Þeim sem leita eftir aðgangi að myndefninu í tilgangi sem er annar og ósamrýmanlegur öryggis- og
eignavörsluskyni Signa, til dæmis vegna meints hnupls eins viðskiptavinar frá öðrum eða ágreinings
vegna áreksturs bifreiða tveggja viðskiptavina, skal bent á að ef tjónþoli kæri mál til lögreglu er
lögreglu heimilt að kalla eftir myndefninu áður en því verður eytt skv. 7. gr.

7. gr. Andmæli við framkvæmd vöktunar

Komi fram athugasemdir eða andmæli við framkvæmd vöktunar og/eða ábendingar um að hún
uppfylli ekki þær kröfur sem settar eru í reglum þessum eða lögum skal hafa samband við

framkvæmdastjóra Signa, með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Við búum til allar tegundir skilta

Fleiri tegundir af skiltum standa viðskiptavinum Signu til boða eins og skilti án ljósa. Slík skilti eru mun ódýrari en ljósaskilti enda tekur það styttri tíma að búa þau til og þau eru ekki jafn efnismikil og ljósaskiltin. Skiltin eru oftast smíðuð úr áli, plasti eða plexiefni. Algengustu skilti án ljósa hjá okkur eru álskilti, seglskilti og útfræst skilti. Skiltin má nota bæði utan- og innan húss.

Heimilisfang

Bæjarflöt 19

112 Reykjavík

Iceland

Tölvupóstur

signa(@)signa.is

Sími

}

Opnunartími

Mánudag. – Fimmtud.

kl. 08:00 – 17:00

Föstudaga

kl. 08:00 – 16:15

p

Upplýsingar

VSK nr: 106196 

Kt: 490910-0930